Atomos Ninja V er 5 tommu 4K HDMI upptökuskjár sem tekur upp og endurspilar DCI 4K, UHD 4K og HD vídeó af nýrri gerð SSD diska, mini SSD. Er búinn 10 bita FRC IPS skjá með birtustig upp að 1000 cd/m2 þannig að hann hentar bæði utan- og innandyra.
AtomHD skjátæknin gerir þér kleift að fylgjast nákvæmlega með birtustigi (log gamma) án þess að þurfa að skoða flatar myndir eða nota LUT til að þjappa dynamic range og litasviði. Skjárinn styður vinsæl log snið frá Sony, Canon, Panasonic, ARRI, RED og JVC.
- 1920 x 1200 snertiskjár.
- 10 bita skjár.
- 4K HDMI input.
- 1000 cd/m² birta.
- AtomHDR stilling með 10 stoppa Dynamic Range.
- 10 bita 4:2:2 ProRes og DNxHR kóðun.
- Tekur upp á Mini SSDs.
- Styður margar tegundir af Log sniðum.
- Ein rauf fyrir Sony L-línu rafhlöðu.