Antigravity A1 – 360° dróni sem tekur upp í 8K
- Insta360 kynnir Antigravity A1, fyrsta 360° dróna heims, hannaður fyrir einfaldleika og sveigjanlega myndbandsupptöku. Antigravity A1 er léttur, samanbrjótanlegur 360° dróni með 8K möguleika, hreyfistýringu ásamt sjóngleraugum sem setur þig í miðju senunnar. Dróninn tekur upp allt í kringum þig í einni flugferð sem auðveldar að ná öllu því sem á sér stað í hverri ferð.
360° vídeó í einni flugferð
- A1 tekur upp 8K 360° víðmyndband með linsum efst og neðst á drónanum og notar reiknirit til að fjarlæga sjálfan drónan úr vídeóinu sjálfu svo þú sérð alla senuna sem tekinn er upp hverju sinni.
- Með 360° upptöku þurfa flugmenn ekki að ákveða eitt fast sjónarhorn á meðan þeir fljúga. A1 tekur upp í allar áttir í einni töku. Eftir flugið geta notendur endurraðað myndbandinu í fram-, hliðar-, ofan-niður eða afturábaksmyndir og flutt það út í sniðum eins og 16:9 eða 9:16 úr sama myndskeiðinu.
- Dróninn vegur 249g og er með samanbrjótanlegri hönnun. Þetta gerir hann auðveldan í flutningi.
(Infinity-pakkinn er með stærri rafhlöðu og vegur 291g)
Yfirgripsmikið útsýni með Vision-gleraugum og Grip-stýringu
- A1 notar Antigravity Vision gleraugu til að veita 360° útsýni í beinni útsendingu í flugi. Með höfuðmælingu geta flugmenn horft frjálslega í kringum sig innan myndbandsins á meðan dróninn heldur áfram á leið sinni. Gleraugun nota Pancake-sjóntæki og Micro-OLED skjái með 2560×2560 upplausn á hvert auga, 90° sjónsvið og díóptríustillingu frá +2D til –5D og eru TÜV Rheinland Low Blue Light-vottuð.
- Einföld stjórnuna dróna er með Grip-hreyfistýringu. Í FreeMotion-stillingu beina notendur pinnanum í þá átt sem þeir vilja fara og ýta á takkann. Sérstök FPV-stilling er í boði fyrir flugmenn sem kjósa hefðbundna úlnliðsstýringu.
- Fyrir skipulagaðar myndatökur styður A1 Sky Path fyrir fyrirfram útbúnar leiðir, Sky Genie fyrir sjálfvirkar hreyfingar og Deep Track fyrir mælingar á viðfangsefni. Þessar stillingar eru hannaðar til að auðvelda endurteknar og stöðugar flugferðir.
Öryggi í flugi, rafhlöður og linsur
- Til að vernda linsurnar við flugtak og lendingu notar A1 sjálfvirkan lendingarbúnað sem virkjast þegar kveikt á er á honum, dregst inn eftir flugtak og aftur út fyrir lendingu.
- 360° lárétt hindrunarvarnakerfi fylgist með flugleiðinni og vinnur ásamt leiðsöguaðstoð í gleraugunum til að halda útsýninu fram á við sýnilegu allan tímann. Sjálfvirk heimkomuaðgerð getur fært drónann aftur á upphafsstað og forðast hindranir. Kerfi til að greina farm hjálpar til við að koma í veg fyrir flug með of mikilli þyngd.
- A1 styður tvær gerðir af rafhlöðum: venjulegar rafhlöðu með allt að 23 mínútna flugtíma og rafhlöðu með mikilli afkastagetu sem fylgir Infinity pakkanum með allt að 36 mínútum.
- Dróninn er einnig með skiptanlegri linsuhönnun sem gerir kleift að skipta um skemmdar linsur án þess að skipta um alla myndavélina.




